-
Nafn félagsins er Píratar. Aðsetur þess og varnarþing skal vera í Reykjavík.
-
Ensk þýðing á heiti félagsins er Pirate Party Iceland. Nota má hana sem hjáheiti.
-
Félagið er stjórnmálaflokkur.
-
Félagið mótar sér stefnu í opnu ferli.
-
Hlutverk félagsins er að vinna stefnu sinni framgang.
-
Félagið reynir að leggja fram framboðslista til Alþingis- og sveitarstjórnarkosninga.
Félagið skal leitast við að bjóða fram undir listabókstafnum P, bjóði það fram undir sínu eigin nafni.
-
Skrifstofa félagsins og starfsmenn þess hafa engin réttindi eða stöðu umfram aðra félagsmenn. Hlutverk þeirra er að greiða fyrir stefnumótun og starfi félagsins.
-
Firmaritun félagsins er í höndum meirihluta framkvæmdaráðs.
-
Fundarsköp allra reglulegra ráða á vegum Pírata skulu skilgreind og aðgengileg félagsmönnum.
Fundir Pírata skulu vera opnir.
-
Á vegum félagsins skal rekið kosningakerfi sem allir félagsmenn hafa aðgang að. Með almennri kosningu í lögum þessum er átt við kosningar í kerfi þessu sem allir félagsmenn hafa kosningarétt í. Auk almennra kosninga er heimilt er að nýta kosningakerfi Pírata til kosninga innan aðildarfélaga.
Framkvæmdaráð ber ábyrgð á rekstri og umsjón kosningakerfisins. Líta skal á kosningakerfið sem standandi félagsfund og setja því sérstök fundarsköp.
-
Félagið getur ályktað í gegnum kosningakerfi sitt. Ályktanir teljast samþykktar ef þær ná einföldum meirihluta og minnst 10% virkra félagsmanna tók þátt í kosningunni.
-
Tillögur að ályktunum skulu lagðar fram á kosningakerfi félagsins. Hljóti þær stuðning minnst 1% virkra félagsmanna skal formælenda ályktunarinnar heimilt að hefja almenna kosningu.
Almenn kosning skal standa yfir í 6 daga.
-
Hver sem er 16 ára á árinu eða eldri getur fengið fulla aðild að félaginu.
-
Félagsmenn skulu hafa aðgang að félagatali, en aðrir ekki.
-
Félagar mega vera skráðir með dulnefni í félagatali.
-
Listi yfir trúnaðarmenn félagsins skal þó vera aðgengilegur almenningi.
-
Inntökubeiðnir í félagið, sem og úrsagnir skulu fara fram skriflega eða með rafrænum hætti.
-
Þeir sem vilja ganga í félagið skulu auðkenna sig með aðferð sem ákveðin er af framkvæmdaráði.
-
Skráningar og úrsagnir skulu gilda frá tímasetningu staðfestingar á móttöku.
-
Félagsmaður telst virkur hafi hann tekið þátt í almennri kosningu á undangengnum mánuði.
-
Ákveða má félagsgjöld á aðalfundi.
-
Á aðalfundi er mörkuð stefna félagsins og teknar ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður.
-
Aðalfundur skal vera haldinn fyrir lok janúarmánaðar ár hvert. Tilkynna skal áætlaða dagsetningu aðalfundar í síðasta lagi 1. desember.
-
Endanlegt fundarboð til aðalfundar með áætlaðri dagskrá og staðsetningu skal sent öllum félagsmönnum með ábyggilegum hætti minnst þremur vikum fyrir auglýsta dagsetningu.
-
Framkvæmdaráð hefur heimild til að fresta aðalfundi um viku frá auglýstri dagsetningu, en aðeins í eitt skipti. Frestun verður að vera tilkynnt minnst viku fyrir auglýsta dagsetningu. Þeir skila- og framboðsfrestir sem ekki hafa runnið út þegar frestun á sér stað framlengjast.
-
Félaginu er heimilt að álykta um boðun auka-aðalfundar. Styðji ⅓ hluti félagsmanna ályktunartillögu um slíkt skal hún teljast samþykkt.
Framkvæmdaráð skal boða til auka-aðalfundar innan þriggja vikna frá samþykkt ályktunar þess efnis.
-
Framkvæmdaráð skipuleggur dagskrá aðalfundar.
-
Fundargögn aðalfundar skulu afhent félagsmönnum með rafrænum hætti samhliða fundarboði. Verði fundargögn til eftir að boðað er til fundar skal afhenda félagsmönnum uppfærðan fundarboðspakka minnst þremur sólarhringum fyrir aðalfund.
-
Árskýrsla félagsins og ársreikningur fylgja öðrum fundargögnum.
-
Allir félagsmenn sem skráðir eru 30 dögum fyrir aðalfund hafa aðgang að honum.
-
Á aðalfundi eru tveir skoðunarmenn reikninga kjörnir með STV forgangskosningu.
-
Framkvæmdaráð tekur við framboðum í öll embætti, og tryggir að allir frambjóðendur fái sanngjarna kynningu.
-
Frambjóðendur í embætti skulu skila inn hagsmunaskráningu til sitjandi framkvæmdaráðs, tveimur vikum fyrir aðalfund.
-
Slembivaldir framkvæmdaráðsmenn skulu skila inn hagsmunaskráningu eigi síðar en tveimur vikum eftir val þeirra. Verði brestur á þessu skulu þeir víkja fyrir varamönnum.
-
Hagsmunaskráningar eru birtar á vefsíðu félagsins.
-
Nánari reglur um hagsmunaskráningu skulu útfærðar af framkvæmdaráði og samþykktar í almennri kosningu.
-
Þessi lög eru öll lög félagsins, en þeim má breyta á aðalfundi með ⅔ hlutum atkvæða.
-
Samfara þessum lögum skal vera grunnstefnuskjal félagsins. Gilda sömu reglur um breytingar á grunnstefnu og á lögum.
-
Tillögum að breytingum á lögum og grunnstefnu skal skilað framkvæmdaráðs eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
-
Stefna félagsins er ákvörðuð með ályktunum.
-
Ályktanir um stefnu skulu tilgreina að þær séu stefnumótandi.
-
Stefna skal ætíð hafa tilvísun í fyrri ályktanir félagsins.
-
Ályktun um stefnu skal fylgja greinargerð með skýringum og rökstuðningi.
-
Stefna má aldrei ganga gegn grunnstefnu félagsins. Úrskurðarnefnd er heimilt að ógilda ályktun sem gengur gegn grunnstefnu.
-
Málefnahópar safna upplýsingum varðandi afmarkað málefni. Starfstíma málefnahóps eru einnig sett ákveðin takmörk.
-
Málefnahóp er sett stofnskrá með ályktun. Í stofnskrá skal koma fram hvaða málefni hópnum ber að fjalla um, hvaða tímamörk honum eru ætluð og hverju honum ber að skila af sér.
Málefnahóp er heimilt að bera fram tillögu að ályktun til að breyta stofnskrá sinni.
-
Öllum er heimilt að taka þátt í málefnahóp. Fundir þeirra skulu vera opnir og auglýstir á vettvangi félagsins.
-
Starfsmenn og kjörnir fulltrúar skulu vera málefnahópum innan handar við upplýsingaöflun. Málefnahópi er heimilt að krefjast þess að kjörnir fulltrúar beiti lögbundnum réttindum stöðu sinnar til aðstoðar við upplýsingaöflun.
-
Málefnahópur skal velja sér ábyrgðarmann og fundarritara.
-
Málefnahópur skilar skýrslu um störf sín og þær upplýsingar sem aflað var. Málefnahópur skipar ritstjóra fyrir skýrsluna.
-
Framkvæmdaráð annast almenna stjórn og rekstur félagsins.
-
Í framkvæmdaráði sitja sjö manns, sem skipta með sér verkum.
-
Félagsmenn aðrir en kjörnir fulltrúar, efstu tveir menn hvers framboðslista og starfsmenn geta átt sæti í framkvæmdaráði. Þó skal enginn sitja meira en tvö ár samfleytt í framkvæmdaráði.
-
Fimm meðlimir framkvæmdaráðs eru kjörnir í almennri kosningu, og fimm til vara. Kosning skal fara fram með STV forgangskosningu. Kosningin skal standa í viku og ljúka við upphaf aðalfundar.
Condorcet sigurvegari kosninganna, sé hann til, skal vera formaður framkvæmdaráðs.
-
Tveir meðlimir framkvæmdaráðs eru valdir með slembivali, og tveir til vara. Ekki skal velja félagsmenn sem áttu sæti í framkvæmdaráði á undanförnu ári eða hafa hlotið kjör til þess framkvæmdaráðs sem verið er að skipa.
-
Framkvæmdaráð skal funda að lágmarki mánaðarlega, og skal boðað til fundarins með viku fyrirvara.
-
Framkvæmdaráðsfundur telst löglegur ef a.m.k. 4 meðlimir framkvæmdaráðs eru viðstaddir.
-
Falli þrír fundir framkvæmdaráðs í röð niður vegna vanskipunar skal boðað til aukaaðalfundar.
-
Innan félagsins skal starfa úrskurðarnefnd. Úrskurðarnefnd sker úr um öll ágreiningsefni sem upp koma varðandi starf Pírata.
-
Í úrskurðarnefnd skulu fimm aðilar eiga varanlegt sæti. Forseti úrskurðarnefndar skal skipaður af framkvæmdaráði. Tveir skulu kjörnir með STV forgangskosningu á aðalfundi. Tveir skulu slembivaldir úr tölu meðlima á aðalfundi.
Að auki skulu málsaðilar skipa sinn fulltrúann hvor í hverju máli sem upp kemur.
-
Dómreglur úrskurðarnefndar skulu ákvarðaðar með ályktun félagsins.
Leggi úrskurðarnefnd fram ályktunartillögu um dómreglur þarf hún samþykki einfalds meirihluta í almennri kosningu. Leggi aðrir fram ályktunartillögu um dómreglur þarf hún samþykki ¾ greiddra atkvæða í almennri kosningu.
-
Komi upp rökstuddur grunur um saknæmt athæfi skal úrskurðarnefnd vísa málinu til lögreglu.
-
Komi upp ágreiningur um brottrekstur skal úrskurðarnefnd úrskurða um málið.
-
Ákvörðun úrskurðarnefndar er bindandi.
Þó skal heimilt að óska breytingar á ákvörðun ef sýnt þykir að hún leiði til þess að framboð uppfylli ekki kröfur landslaga. Einnig skal heimilt að skilgreina sérstakar reglur um endurupptöku mála í dómreglum úrskurðarnefndar.
-
Framkvæmdaráð er heimilt að ráða framkvæmdastjóra fyrir hönd félagsins ef fjárreiður leyfa.
-
Framkvæmdastjóri skal hafa frumkvæði um að ráða annað starfsfólk félagsins, en þær skulu háðar samþykki framkvæmdaráðs.
-
Laun framkvæmdastjóra og annars starfsfólks skal ekki vera hærra en þingfararkaup.
-
Víkja má starfsfólki úr starfi með ályktun.
-
Upplýsingar um starfsfólk skulu koma fram á vefsíðu félagsins.
-
Heimilt er að líta svo á að lögaðilar séu aðildarfélög Pírata að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Félag sem óskar eftir að teljast aðildarfélag Pírata sendir umsókn um slíkt til framkvæmdaráðs, ásamt lögum sínum.
Uppfylli félagið þau skilyrði sem sett eru í lögum þessum skal framkvæmdaráð bera fram tillögu til ályktunar um aðild þess.
-
Aðildarfélögum er óheimilt að ganga gegn lögum eða grunnstefnu Pírata. Úrskurðarnefnd er heimilt að fella niður aðild félags sem brýtur gegn lögum eða grunnstefnu.
-
Framkvæmdaráð heldur sameiginlega félagaskrá fyrir öll aðildarfélög Pírata. Allir félagar aðildarfélags verða jafnframt að vera félagar í Pírötum.
-
Aðildarfélagi ber að skila fundargerð aðalfundar, ársskýrslu og bókhaldsgögnum sínum til framkvæmdaráðs. Hafi slík gögn borist fyrir lok júnímánaðar telst aðildarfélag vera virkt.
-
Aðildarfélagi ber að skilgreina í lögum sínum hvenær það teljist starfhæft. Uppfylli aðildarfélag ekki eigin skilyrði um starfhæfni skal því slitið. Einnig skal aðalfundi Pírata heimilt að boða aðalfund í eða slíta óvirku aðildarfélagi.
Eignir aðildarfélaga skulu renna til Pírata við félagsslit.
-
Starfssvæði svæðisbundins aðildarfélags skal vera minnst eitt sveitarfélag.
Einungis skal eitt svæðisbundið aðildarfélag starfa í hverju sveitarfélagi. Þó skal heimilt að stofna aðildarfélag sem nær yfir heilt kjördæmi með aðkomu allra virkra aðildarfélaga innan þess kjördæmis.
Úrskurðarnefnd sker úr um ágreining um starfssvæði.
-
Aðildarfélagi er heimilt að skipta starfsemi sinni frekar. Aðildarfélagi ber að gera framkvæmdaráði grein fyrir slíkri skiptingu að því leyti sem hún hefur áhrif á félagaskráningu.
-
Bókhaldsár félagsins er almanaksárið.
-
Félagið skal lúta lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
-
Bókhald félagsins skal vera opið almenningi á vefsíðu félagsins. Það skal uppfært jafn óðum, með fyrirvara um villur og samþykki aðalfundar.
-
Samþykktir ársreikningar skulu liggja fyrir á vefsíðu félagsins.
-
Félaginu er eingöngu heimilt að taka lán fyrir rekstri og öðrum útgjöldum félagsins ef áætlaðar tekjur eru fyrirsjáanlegar og öruggar. Engin lán sem binda félagið mega fara fram án samþykkis framkvæmdaráðs.
-
Félaginu er ekki heimilt að lána öðrum lögaðilum fé.
-
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á útgjöldum félagsins.
Öll fjárútlát sem fara yfir 200.000 kr, miðað við neysluvísitölu 1. október 2012 skulu vera skriflega samþykkt af framkvæmdaráði.
-
Fé sem situr eftir í sjóðum eftir bókhaldsárið skal renna í sjóð næsta árs.
-
Þátttaka í kosningum er á ábyrgð aðildarfélaga á kjörsvæði.
Hafi aðildarfélögum innan kjördæmis til Alþingiskosninga ekki komist saman um annað skal starfa kjördæmisráð skipað einum fulltrúa fyrir hvert sveitarfélag þar sem Píratar hafa starfsemi.
-
Framkvæmdaráð annast samræmingu kosningabaráttu á landsvísu í samráði við aðildarfélögin.
Framkvæmdaráði er heimilt að útbúa kosningastefnuskrá fyrir Alþingiskosningar út frá samþykktri stefnu.
-
Heimilt er að stofna til kosningabandalags við Alþingiskosningar með ályktun. Ályktun um slíkt ber að samþykkja með minnst ¾ atkvæða.
Aðildarfélögum er heimilt að hafa samskonar heimild varðandi sveitarstjórnarkosningar.
-
Allir kjörgengir félagsmenn geta gefið kost á sér á framboðslista. Þó getur félagsmaður er hefur setið tvö næstliðnu kjörtímabil í ákveðnu embætti ekki boðið sig fram á framboðslista til sama embættis.
-
Raða skal á framboðslista samkvæmt úrslitum forgangskosningar með Schulze-aðferð. Þó skal frambjóðendum heimilt að víkja sæti og taka lægra sæti á lista en kjör hans segir til um, og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista. Starfsmanni er ekki heimilt að taka fyrsta eða annað sæti. Hafni frambjóðandi sæti eða geti af öðrum sökum ekki tekið því skal raða á lista með endurtalningu atkvæða að brottfelldum frambjóðanda.
Nægi fjöldi frambjóðenda að þessum breytingum loknum ekki lögbundnu lágmarki fyrir fullskipaðan framboðslista er ábyrgðaraðila listans heimilt að bæta nöfnum þeirra sem það samþykkja í sæti á eftir þeim sem kjörnir hafa verið á framboðslistann.
-
Þingmenn Pírata eru ábyrgir gagnvart félaginu í heild.
Sveitarstjórnarfulltrúar eru ábyrgir gagnvart því svæðisbundna aðildarfélagi sem starfar í sveitarfélagi þeirra.
-
Þingflokki er heimilt að halda lokaða fundi þrátt fyrir gr. 3.2. Lokaðan fund má eingöngu halda ef lögbundin þagnarskylda hvílir á dagskrárefni hans.
Tilkynna ber um efni fundarins og ástæður fyrir lokun hans til félagsmanna.
Svæðisbundnum aðildarfélögum er heimilt að veita sveitarstjórnarfulltrúum sínum sömu undanþágu frá gr. 3.2.
-
Framkvæmdaráð getur óskað eftir því að kjörnir fulltrúar mæti á fund sinn.
-
Þingflokki ber, þegar kjördæmadagar eru á þingi, að halda opinn fund í einu af kjördæmum landsins. Funda skal til skiptis í kjördæmum, og víxla staðsetningum innan kjördæma. Framkvæmdaráð skipuleggur fundi í samráði við aðildarfélög á svæðinu þar sem fundur er haldinn.
-
Fulltrúar í þingflokki skiptast á að gegna þeim embættum sem skylt er að þau taki sér, eigi lengur en til árs í senn.
-
Tilheyri þingflokkur minni hluta á Alþingi og geti ekki fengið aðstoðarmann til starfa á þinginu nema með því að hafa formann, skal einn þingmaður gegna embætti formanns félagsins, eitt þing í senn. Skal hann slembivalinn úr hópi þeirra þingmanna sem ekki hafa formlegt embætti innan þingflokks. Titillinn skal ganga í keðju milli þingmanna, og skal færast milli þeirra á sama tíma og embætti þingflokks. Hafi allir þingmenn formlegt embætti innan þingflokks skal ritari þingflokks einnig hafa titil formanns Pírata.
Þingmaður sem ber titil formanns Pírata hefur ekki aukin pólitísk völd og skal afþakka formannsálag á þingfararkaup.
-
Þingflokkur skal setja sér starfsreglur og skulu þær vera opinberar.
-
Félagsslit geta aðeins farið fram sé tillaga um slíkt á auglýstri dagskrá löglegs aðalfundar og samþykkt með ¾ hluta fundarmanna.
-
Við félagsslit skulu eignir félagsins renna til Pirate Parties International.
2.4 "Félagið reynir að leggja fram framboðslista til Alþingis- og sveitarstjórnarkosninga.
Félagið skal leitast við að bjóða fram undir listabókstafnum P, bjóði það fram undir sínu eigin nafni."
=> "Félagið reynir að leggja fram framboðslista til Alþingis- og sveitarstjórnarkosninga.
Félagið skal leitast við að bjóða fram undir listabókstafnum Þ, bjóði það fram undir sínu eigin nafni."